Á næsta fundi mun Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur koma og ræða um fræðigrein sína. Það er algengt að fólk hafi rangar eða vitlausar upplýsingar um næringu og hreyfingu í dag, sérstaklega þar sem fjöldinn allur af kuklurum dæla stöðugt út úr sér vafasamar staðhæfingar sem hafa engin góð sönnunargögn bakvið sig.
Ólafur skrifaði nýlega greinina “Láttu ekki ljúga að þér” á DV.is þarsem hann fór yfir 26 algengustu fullyrðingar um hreyfingu og mataræði sem eiga ekki við nein rök að styðjast.
Hægt er að lesa greinina hérna:
http://www.dv.is/consumer/2010/3/16/lattu-ekki-ljuga-ad-ther/
Við ætlum aftur að hittast á Thorvaldsen 6. apríl klukkan 20.00. Komið og takið þátt í umræðunni!
0 Responses to “Efast á kránni 6. apríl 2010”