Það verður pöbbkviss á næsta EÁK með kvissmaster Óla Gneista (þjóðfræðing og fyrrverandi forman vantrúar).
Við ætlum að hittast á Thorvaldsen, 1. júni kl 20:00. Komið og sannið fyrir okkur yfirburðar þekkingu ykkar. Verðlaun verða í boði!
Skeptics in the Pub á Íslandi
Það verður pöbbkviss á næsta EÁK með kvissmaster Óla Gneista (þjóðfræðing og fyrrverandi forman vantrúar).
Við ætlum að hittast á Thorvaldsen, 1. júni kl 20:00. Komið og sannið fyrir okkur yfirburðar þekkingu ykkar. Verðlaun verða í boði!
Enn og aftur ætlum við að hittast, fá okkur eitthvað að drekka, segja nokkra lélega brandara og ræða um efahyggju, húmbúkk, trúleysi og allt sem því tengist.
Þema kvöldsins er Póstmódernismi. Hvað er pómó? Er allt afstætt? Er ekki hægt að komast að neinum sannleika? Afhverju er ekki hægt að rökræða við póstmódernista?
Látið sjá ykkur og takið þátt í umræðunni!
Viðburðurinn á Facebook:
http://www.facebook.com/event.php?eid=121450324532826
Á næsta fundi mun Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur koma og ræða um fræðigrein sína. Það er algengt að fólk hafi rangar eða vitlausar upplýsingar um næringu og hreyfingu í dag, sérstaklega þar sem fjöldinn allur af kuklurum dæla stöðugt út úr sér vafasamar staðhæfingar sem hafa engin góð sönnunargögn bakvið sig.
Ólafur skrifaði nýlega greinina “Láttu ekki ljúga að þér” á DV.is þarsem hann fór yfir 26 algengustu fullyrðingar um hreyfingu og mataræði sem eiga ekki við nein rök að styðjast.
Hægt er að lesa greinina hérna:
http://www.dv.is/consumer/2010/3/16/lattu-ekki-ljuga-ad-ther/
Við ætlum aftur að hittast á Thorvaldsen 6. apríl klukkan 20.00. Komið og takið þátt í umræðunni!
Við minnum á næsta EÁK sem verður haldin á Thorvaldsen, þriðjudaginn 3 mars kl 20.00. Þórður Örn Arnarson ætlar að mæta og ræða um efahyggju og sálfræði.
Þórður er/var ritstjóri Húmbúkks blogsins á Eyjunni sem vakti mikla lukku meðal efahyggjufólks hér á landi en hefur nú verið í sumarfríi síðustu mánuðina.
Látið sjá ykkur og takið þátt í umræðunni!
Það er stefnt á Celtic Cross í þetta skiptið og ætlum við að fjölga í bakherberginu þar.
Ræðumaður mánaðarins mun vera Jóhann Björnsson, heimspekingur og námsstjóri hjá Siðmennt. Hann hefur verið að kenna ungu fólki gagnrýna hugsun í gegnum árin og ætlar einmitt að ræða það starf næst þriðjudag.
Blogg Jóhanns:
johannbj.blog.is/
Efast á Kránni á Facebook:
http://www.facebook.com/home.php#/group.php?gid=120256588837
Við minnum á Efast á kránni á morgun klukkan 21 í innra herberginu á Ölverinu í glæsibæ. Félagar úr stjörnuskoðunarfélaginu koma og kynna starfsemi félagsins ásamt þess að ræða um heima og geima (þarsem það er víst þeirra áhugamál).
Fyrir frekari upplýsingar, kíkið á okkur á facebook:
http://www.facebook.com/home.php#/event.php?eid=232631304120&index=1
Við ætlum að hittast í hliðarherberginu á efri hæð Balthazar (Hafnarstræti 1-3).
Eins og planið var, þá ætlum við að hittast aftur næsta þriðjudag og blanda geði.
Ég náði að plata Svan Sigurbjörnsson til þess að vera með smá fyrirlestur. Fyrir þá sem þekkja ekki til Svans þá hefur hann meðal annars unnið það merka afrek að hafa verið kallaður dóni af detox drottningu íslands, Jónínu Ben, fyrir grein hans “afhverju EKKI detox” sem vitnað hefur verið í fjölmiðlum.
Einnig hefur Svanur skrifað fjöldann af góðum greinum á Vantrú og á blogginu hans svanurmd.blog.is.
Við hittumst á Highlander frá kl 21:00 næsta þriðjudag!
Fyrir þá sem eru á Facebook þá getið þið fylgst með hér.
Eftir síðasta hitting var ákveðið að við hittumst alltaf síðasta þriðjudaginn í hverjum mánuði og verður þá næsti 29. september. Einnig var stungið upp á að við verðum með þema eða jafnvel einhvern fyrirlestur. Ef þið hafið hugmyndir eða uppástungur, endilega commentið við þennan póst.
-Kristján Lindberg